ehf.

Hver er þessi Kristófer?.

Djarfur. Hreinskilinn. Óháður.

ehf. er til fyrir fólk sem vill skilja hvað er raunverulega að gerast - ekki bara lesa smellubeitu fyrirsagnir sem fjölmiðlar nota til þess að selja fleiri auglýsingar.

Markmiðið með ekkert helvítis frí er að veita áskrifendum innsýn í flókin mál sem tengjast fólki sem lætur til sín taka í samfélaginu, hvort sem það er fyrirtækjarekstur, stjórnmál, íþróttir eða listir, með eins einföldum og skýrum hætti og kostur er, á hreinni íslensku. Hér verður ekkert dansað í kringum hlutina og engin aðgát höfð í nærveru regluverks.

Ég þykist ekki vera hlutlaus. Mínar skoðanir munu birtast í umfjöllunum, enda er þetta ekki fjölmiðill heldur innsýn í minn hugarheim - þar sem sannarlega er ekkert helvítis frí.

Hér tek ég af mér alla mína hatta og skrifa beint frá hjartanu. Þær skoðanir, staðhæfingar, tillögur og hugmyndir sem birtast í umfjöllunum eru alfarið á minni ábyrgð og endurspegla ekki skoðanir fjölskyldu, vina og hvorki núverandi né fyrrverandi viðskiptavina fyrirtækja minna eða þeirra sem ég gegni stjórnarsetu hjá.